Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2529
Ritgerðin fjallar um ABC kostnaðargreiningu og hvernig hægt er að nota hana til að varpa ljósi á hver sé raunverulegur kostnaður við fjórar tegundir læknisþjónustu sem framkvæmdar eru hjá nýstofnuðu fyrirtæki á heilbrigðissviði, Hjartamiðstöðinni ehf.
ABC (e. Activity Based Costing) eða verkgrundaður kostnaðarreikningur er aðferða-fræði sem er notuð til að greina kostnað og skipta honum niður á verkefni. Þessi aðferð er talin gefa nákvæmari upplýsingar um tilurð kostnaðarins heldur en hefðbundið rekstrarbókhald. Sjúkdómar aldraðra verða sífellt algengara viðfangsefni heilbrigðisstarfsfólks, þá sérstaklega hjarta- og æðasjúkdómar. Breyttir lifnaðarhættir auka einnig líkurnar á sömu sjúkdómmum. Markmiðið með stofnun Hjartamiðstöðvarinnar ehf. er að veita einstaklingum sem þangað leita greiðan aðgang að fyrsta flokks sérfræðiþjónustu. Gögn úr fjárhagsbókhaldi og verkbókhaldi fyrirtækisins fyrir tímabilið janúar – mars 2009 voru greind þannig að hægt væri að flokka kostnaðinn og skipta honum í beinan og óbeinan kostnað. Allar komur til sérfræðinganna fyrir sama tímabil voru sundurliðaðar eftir verkum og þær notaðar sem stuðlar fyrir útdeilingu á óbeinum kostnaði. Rekstrarafgangur hvers verks var fundinn út með því að draga heildarkostnað þess frá því gjaldi sem innheimtist fyrir hverja þjónustu fyrir sig.
Á grundvelli niðurstaðanna var gerð áætlun að breyttu framboði á þjónustunni. Með breyttu samvali afurða er hægt að bæta reksturinn umtalsvert. Með því að stýra bókununum í fyrirfram ákveðnu kerfi er frekar hægt að tryggja að framboð af dýrari rannsóknum sé ávallt nægjanlegt og stýringin leiðir einnig til betra og þægilegra starfsumhverfis fyrir alla starfsmenn miðstöðvarinnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
JúlíaHrönn_fixed.pdf | 309.18 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |