Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25317
Í Norðvesturkjördæmi Íslands, milli Mælifellshnjúks í suðri og Drangeyar í norðri, eru heimamenn þekktir fyrir sönglíf sitt og hestamennsku. Kraftmiklir tónar óma víðsvegar um fjörðinn í sönghneigðu héraði. Tvisvar í viku hittast áttatíu menn úr firðinum í menningarmiðstöðinni Melsgili þar sem þeir syngja saman allan veturinn, ár eftir ár. Þetta er karlakórinn Heimir. Hann hefur í langa tíð átt fastskipaðan sess í menningarlífi Skagfirðinga og er orðinn eitt þekktasta menningarfyrirbæri svæðisins. Stofnun Heimis má rekja til upphaf karlakórsmenningar í Skagafirði og hefur mikil hefð myndast í kringum hann í formi fjölskyldubanda og félagsskapar. Kórinn tengist samfélagi sínu sterkum böndum og syngur við hvert mikilvægt tilefni í Skagafirði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
RagnheidurBA.pdf | 1.34 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |