Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25334
Í eftirfarandi ritgerð er fjallað um mat og tilfinningar í tengslum við list og líf. Skoðaðar eru kenningar taóista og skáldasagnapersónunnar Bangsímons í tengslum við tilfinningar og lífsviðhorf. Einkum eru hversdagstilveran, tilviljunin og jákvæðnin skoðaðar með skrif A. A. Milne og Lao-Tse í huga. Listamennirnir Sophie Calle og Dieter Roth eru rannsakaðir og settir í samhengi við verk höfundar jafnframt því sem fjallað verður um feril höfundar. Þá er flúxus-stefnan og tenging hennar við mat skoðuð og kafað í saumana á nokkrum verkum höfundar s.s. Máltíðin (2015) og Landslag (2014). Með ofangreinda þætti í huga sýnir höfundur fram á hversu náin tengslin milli matar, tilfinninga og lista eru, jafnframt því að greina og tala um eigin ástæður fyrir listsköpun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA.pdf | 3.4 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |