Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25416
Silk er leturfjölskylda sem samanstendur af þremur meginflokkum: serif, sans og semisans sem liggur mitt á milli hinna tveggja. Hver flokkur inniheldur skáletraða útgáfu og allar gerðir letursins eru hannaðar í fjórum þykktum: light, regular, medium og bold. Markmiðið við hönnun Silk var að allar útgáfurnar myndu passa vel saman í samfelldum texta og að letur í svipaðri þykkt myndi sýna sama týpógrafíska litinn. Silk er hannað með það fyrir augum að letrið fari vel á síðum tískutímarita, sé fíngert og auðlæsilegt en umfram allt fágað.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinagerð2.compressed.pdf | 3.37 MB | Lokaður | Greinargerð |