Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25421
Um leið og nýtt jarðsögutímabil virðist vera gengið í garð – „Anthropocene“ eða mannskeiðið – verða hraðfara breytingar í lífhvolfi jarðarinnar. Aukin kolefnislosun vegna athafna mannsins er að gjörbreyta flestum vistkerfum
og í kjölfarið hefur hafið, sem þekur um 70% af yfirborði jarðar, byrjað að súrna með ófyrirséðum afleiðingum. Verkefnið Kalka er tilraun til að sporna við súrnun hafsins. Með aðferðinni „Biorock“ er sterkt og endingargott
efni ræktað í hafinu á sjálfbæran hátt. Efnið má nota sem byggingarefni eða til framleiðslu á margskonar hlutum sem síðan má skila aftur til sjávar eftir notkun. Í sjónum bindur efnið koltvísýring og þannig minnkar efnið áhrif losunar gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
birta_kalka.compressed.pdf | 2.77 MB | Lokaður | Greinargerð |