Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25426
Steinskriftin Grotest er rannsókn á formi og samsetningu leturs. Blandað er saman hringlaga og kassalaga leturformum í eitt letur. Letrin tvö eru ólík en sjónrænt virka þau vel saman þar sem þau hafa svipaða þykkt, hæð og sýna bæði geómetrísk form. Tilviljun ræður hvaða leturform – það hringlaga eða það kassalaga – birtast þegar texti er skrifaður með letrinu. Þannig má skrifa sama orðið í ótal mismunandi samsetningum. Letrið Grotest blandar þannig saman tveimur letrum í hverju orði á áhugaverðan og einstakan hátt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinagerð_Grotest_olafurthor.compressed.pdf | 324.29 kB | Lokaður | Greinargerð |