Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25544
Bakgrunnur: Rannsóknir sýna að í vestrænum samfélögum eru fitufordómar til staðar á meðal heilbrigðisstarfsfólks, einstaklinga sem starfa við þjálfun og á meðal íþróttafræðinema. Markmið þessarar
rannsóknar var því að kanna hvort fitufordómar séu til staðar á meðal íþróttafræðinga og íþróttafræðinema á Íslandi og bera saman við viðmiðunarhóp sem samanstendur af sálfræðingum og sálfræðinemum.
Aðferð: Samtals tóku 497 þátt í rannsókninni, 131 (26,4%) íþróttafræðinemi, 116 (23,3%) sálfræðinemar, 60 (12,1%) íþróttafræðingar og 190 (38,2%) sálfræðingar. Af þátttakendum voru 341 kona (68,8%) og 155 karlar (31,2%). Lagðir voru fyrir þrír sjálfsmatskvarðar til að meta viðhorf til feitra (AFA), viðhorf til útlits,
hreysti og heilsu (MBSRQ) og félagslega yfirráðahyggju (SDO).
Niðurstöður: Allir hópar sýndu neikvæð viðhorf í garð feitra en íþróttafræði- og sálfræðinemar sýndu neikvæðari viðhorf í garð feitra á öllum undirkvörðum en sálfræðingar (p<0,05). Íþróttafræðingar telja
frekar að líkamsþyngd stjórnist af viljastyrk en sálfræðingar (p<0,05).
Ekki var munur á fitufordómum hjá íþróttafræðinemum á fyrsta og þriðja ári. Íþróttafræðinemar voru með meiri félagslega yfirráðahyggju en aðrir hópar (p<0,05). Yngsti aldurshópurinn er haldinn meiri fitufordómum en þeir sem eldri eru (p<0,05). Karlar hafa meiri andúð á
feitum og telja frekar að líkamsþyngd stjórnist af viljastyrk (p<0,05).
Konur eru hins vegar hræddari við að fitna (p<0,05). Munur á hópunum er ekki tilkominn vegna aldurs- né kynjamunar í úrtaki.
Ályktun: Íþróttafræðingar og íþróttafræðinemar sýna fitufordóma. Út frá lýðheilsufræðilegum sjónarmiðum skiptir máli að reyna að koma í veg fyrir mismunun og útrýma fitufordómum á meðal íþróttafræðinga.
Sérstaklega vegna tengsla íþróttafræðinga við forvarnarstarf barna í grunnskólum. Einnig þar sem íþróttafræðingar sinna þjálfun á feitum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Anna Berglind Jónsdóttir.pdf | 1.4 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |