is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > MEd/MPM/MSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþróttafræðideild -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25636

Titill: 
  • Leitin að gagnlegum mælikvörðum til að meta árangur klasaframtaka
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Það getur reynst flókið að mæla árangur af starfi klasaframtaka en það kallast sú formlega skipulagseining sem skipuleggur og stýrir tilteknum miðlægum verkefnum klasa. Dæmi um tvö íslensk klasaframtök eru Íslenski sjávarklasinn og Jarðhitaklasinn Iceland Geothermal. Viðfangsefni þessarar rannsóknar er að kanna hvort tiltekin atriði í uppbyggingu klasaframtaks og þjónustuframboð þess sé grundvöllur fyrir gagnlega
    mælikvarða á ávinning þátttakenda af starfi klasaframtaks í klasasamstarfi.
    Rannsóknin leiðir í ljós að grunnskipulag og þjónustuframboð klasaframtakanna beggja telst líklegt til að hafa áhrif á starfsemi þátttakenda klasanna og skila þeim ávinningi. Eini grundvallarmunurinn í grunnskipulaginu, sem var til skoðunar í þessari rannsókn, felst í
    því að Jarðhitaklasinn er í eigu þátttakenda klasans og stefnt er að rekstri án hagnaðar. Sjávarklasinn er hins vegar rekinn eins og hvert annað fyrirtæki og er í eigu stofnanda og framkvæmdastjóra Þórs Sigfússonar. Leiða má líkur að því að grunnuppbygging rekstrarforms kunni að hafa áhrif á að Sjávarklasinn hefur alls átta starfsmenn til að sinna þjónustuframboði klasaframtaksins á meðan Jarðhitaklasinn hefur einn starfsmann auk hálfs stöðugildis í útvistuðum verkefnum.
    Afgerandi munur reyndist á viðhorfum þátttakenda til þess hvort þeir væru ánægðir með þjónustuna eða teldu áhrifin af samstarfinu vera jákvæð á starfsemi fyrirtækisins. Þátttakendur Sjávarklasans reyndust mun jákvæðari, líklegri til að þekkja eða nýta þjónustuþætti og telja áhrifin á fyrirtækið meiri og jákvæðari. Þar sem ávinningur þátttakenda er forsenda fyrir aðild þeirra að klasaframtaki þá benda niðurstöður þessarar rannsóknar til þess að umfang þjónustuframboðs klasaframtaks geti verið gagnlegur mælikvarði á árangur af starfi klasaframtaks.
    Efnisorð:
    Árangur, klasaframtak, klasar
    Performance, cluster initiative, cluster organization, cluster

Samþykkt: 
  • 4.8.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/25636


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Leitin að gagnlegum mælikvörðum til að meta árangur klasaframtaka.pdf701.67 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna