Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25821
Ísland situr framarlega á hestinum þegar kemur að jafnrétti kynjanna. Þrátt fyrir það er jafnréttisfræðslu ábótavant í leikskólum og lítil áhersla er lögð á kynjafræði í menntun leikskólakennara. Mikilvægt er að leikskólabörn fái tækifæri til þess að vaxa og dafna í umhverfi sem stjórnast ekki af eðlishyggju. Hér verður rætt um mikilvægi jafnréttisfræðslu í leikskólum og hvort leikskólakennaranemar fái þá fræðslu í námi sínu sem þeir þurfa til þess að stuðla að jafnrétti kynjanna í leikskólum. Kenningar um eðlishyggju, mótunarhyggju, kyngervi og kyn eru miðlægar í umfjölluninni. Skoðaðar verða helstu hindranir sem verða í vegi og leiðir til úrbóta íhugaðar. Þróunarverkefnið Jafnrétti í skólum er skoðað. Fjallað er um kenningu Paechter um iðjusamfélög. Stuðst er við rannsókn Guðnýjar Guðbjörnsdóttur og Steinunnar Helgu Lárusdóttur sem og rannsóknir Þórdísar Þórðardóttur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Elin_Margret_Rafnsdottir_BEd-loka (1).pdf | 600.47 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
yfirlysing_elin.pdf | 30.28 kB | Lokaður | Yfirlýsing |