Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25878
Verkefni þetta er lokaverkefni til B.Ed.-prófs í leikskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands, menntavísindasviði. Verkefni þetta skiptist í tvo hluta, fyrri hlutinn er greinargerð þar sem farið er yfir mikilvægi hreyfingar barna, skilgreiningu á hreyfiþroska og farið yfir þroskastigin sem börn ganga í gegnum frá tveggja ára til sex ára aldurs. Seinni hluti verkefnisins er handbók með hreyfistundum sem hægt er að nýta þegar setja á upp stöðvar fyrir börn á aldrinum tveggja til sex ára. Æfingarnar voru framkvæmdar í leikskólanum Garðaseli á Akranesi, þær æfingar henta börnum á aldrinum tveggja til þriggja ára. Síðan voru gerðar æfingar í íþróttahúsi bæjarins sem hentar börnum á aldrinum fjögra til sex ára og í lokin eru æfingar sem framkvæmdar voru utandyra sem hentar börnum tveggja til sex ára.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Handbók með hreyfistundum.pdf | 11.39 MB | Opinn | Handbók | Skoða/Opna | |
Hreyfing leikskólabarna pdf.pdf | 257.47 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing fyrir lokaverkefni 2016.pdf | 98.16 kB | Lokaður | Yfirlýsing |