Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25956
Ritgerð þessi er lokaverkefni til BA gráðu í kínverskum fræðum við deild erlendra tungumála í Háskóla Íslands. Samanburðarrannsókn var framkvæmd í höfuðstöðvum Marel í Kína sem staðsettar eru í Beijing, rannsóknin fólst í því að bera saman starfsánægju starfsfólks höfuðstöðvanna í Beijing og fjarvinnandi starfsfólks. Leitast var svara við rannsóknarspurningunni: Hvernig er starfsánægja starfsfólks höfuðstöðva Marel í Beijing Kína samanborin við fjarvinnandi starfsfólk fyrirtækisins í Kína. Tilgangurinn var að veita Marel þessar upplýsingar til þess að bera saman við niðurstöður úr þeirra innanhússkönnun sem framkvæmd var fyrr á þessu ári.
Gerð var megindleg rannsókn þar sem spurningakönnun var send í gegnum internetið á starfsfólk höfuðstöðva Marel í Kína og sami listi sendur á fjarvinnandi starfsfólk Marel í Kína og niðurstöður beggja hópa voru síðan bornar saman. Rannsóknin var unnin er höfundur var í starfsnámi hjá Marel í Beijing og var gerð í samráði við framkvæmdastjóra fyrirtækisins í Kína, sem síðan sá um að senda út könnunina á starfsfólk. Spurningum könnunarinnar var skipt upp í níu þætti og var hún byggð upp eftir vinnustaðagreiningu sem VR framkvæmir á hverju ári. Hverjum þætti var gefin heildareinkunn og síðan einkunnir beggja hópa bornar saman. Niðurstöður voru síðan settar upp í myndir og greindar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA-Ritgerð-Jón Gunnar Kristjánsson.pdf | 5.44 MB | Lokaður til...05.06.2050 | Heildartexti | ||
Yfirlýsing.pdf | 303.8 kB | Lokaður | Yfirlýsing |