Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26096
Alejandra Pizarnik (1936-1972) er talin eitt helsta skáld Argentínu og í raun allrar Rómönsku Ameríku. Hún er afar fjölhæfur höfundur og hefur gefið út mörg ólík verk, en hún er best þekkt fyrir ljóð sín. Þær ljóðabækur sem hér verður fjallað um eru La última inocencia (1956) og Las aventuras perdidas (1958).
Í þessari ritgerð verða raktir helstu atburðir í ævi Pizarnik, einkum þeir sem höfðu hvað mest áhrif á þessi verk hennar, en sársauki og sorg eru þar mjög áberandi. Auk verkanna sjálfra verður hér stuðst við rannsóknir og skilgreiningar bókmenntafræðinga sem fjallað hafa um þetta efni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
TESIS.pdf | 466.27 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
declaration jvs.pdf | 292.94 kB | Lokaður | Yfirlýsing |