is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26146

Titill: 
  • Hlutverk grunnskóla við undirbúning nemenda fyrir áframhaldandi nám. „Hvert einasta ár skiptir máli"
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessara rannsóknar var að varpa ljósi á sýn skólastjórnenda í grunnskólum í Reykjavík á því hlutverki skólanna að undirbúa nemendur fyrir áframhaldandi nám, með áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir gegn brotthvarfi. Rannsóknin byggir á hálf- opnum viðtölum við sex skólastjóra. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að allir viðmælendurnir töldu það hlutverk skólans að undirbúa nemendur undir framhaldsnám. Í undirbúningnum fólst meðal annars að efla alla þrjá undirþætti skuldbindingar en þó var aðeins meiri áhersla á vitsmunalega skuldbindingu heldur en tilfinningalega,- eða hegðunarlega skuldbindingu. Athygli vakti að nánast allir viðmælendurnir voru sammála því að hinn eiginlegi undirbúningur hæfist ekki fyrr en á unglingastigi. Þátttakendur voru allir á sama máli með að byrja þyrfti fyrirbyggjandi aðgerðir gegn brotthvarfi í grunnskóla. En þær hindranir sem skólastjórar mæta verða til þess að erfitt getur reynst að vinna markvisst að fyrirbyggjandi starfi. Vonast er til að
    niðurstöðurnar geti nýst stefnumótunaraðilum, skólastjórnendum og starfsfólki grunnskóla til að fá betri hugmynd um hvað það er sem þarf að leggja meiri áherslu á í grunnskólum til að fyrirbyggja brotthvarf úr framhaldsskólum.

  • The aim of this research was to shed light on the views of principals in Reykjavik primary schools on the role of primary schooling preparing students for continuing studies, and specifically in preventing dropout. Six principals were interviewed using in depth-approach. The results showed that all the administrators believed it to be a key role of the school to prepare students for ongoing studies. This preparation included, among other things, strengthening the three main factors of student engagement, with slightly higher emphasis placed on cognitive engagement over emotional and behavioural engagement. It is noteworthy that nearly all interviewees agreed that actual preparation did not start until at the junior level, i.e. the last three years of primary school. Interviewees all agreed that preventive measures for upper secondary school dropout should take place at the primary school level. However, various obstacles faced by principals and make it difficult to do this effectively. Hopefully these results will be useful to policy makers, principals and other school administrating staff to get a better idea of what needs to be emphasized in primary schools to combat dropout at the next educational leve

Samþykkt: 
  • 15.9.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/26146


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaeintak af ritgerð.pdf888.62 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
yfirlysing lydiaksigurdardottir.pdf306.66 kBLokaðurYfirlýsingPDF