Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26289
Norðlenska er stórt framleiðslufyrirtæki með um 195 stöðugildi að meðaltali á
ársgrundvelli. Norðlenska er meðal fremstu fyrirtækja Íslands á sviði kjötvinnslu,
samkeppnin er mikil og því er mikilvægt að standa vel að öllum þáttum sem geta
aukið forskot fyrirtækisins. Eitt það mikilvægasta til að halda forskoti er að vera ávallt
með starfsfólk sem er skrefi framar. Starfsfólkið þarf endurmenntun og fræðslu til að
viðhalda færni og bæta sig í starfi.
Ritgerð þessi er unnin með það að markmiði að útbúa fræðsluáætlun fyrir
Norðlenska. Svo hægt sé að útbúa fræðsluáætlun þarf að greina hvers lags fræðslu er
þörf innan fyrirtækisins og verður notuð þarfagreining til þess. Spurningalistar voru
lagðir fyrir starfsfólkið á þremur tungumálum, notast var við opnar spurningar.
Fræðsluáætlunin verður gerð með það að leiðarljósi að sérhæfa starfsfólk í því
starfi sem það vinnur innan fyrirtækisins, þannig munu ekki allir starfsmenn sækja
sömu námskeið. Með þessu er hægt að hámarka árangurinn og fjármunir nýtast sem
best. Þó eru námskeið sem eru nauðsynleg fyrir alla starfsmenn, má þar nefna
skyndihjálp, hreinlæti og mannleg samskipti. Með því að nota þarfagreiningu er verið
að greina þörfina og ákveða þannig hvers er þörf. Þannig er tryggt að fjármunir nýtist
sem best, því ekki á að líta á þjálfun starfsfólks og endurmenntun sem eyðslu á
fjármunum heldur sem fjárfestingu fyrir fyrirtækið.
Aftast í verkefninu er fræðsluáætlun til eins árs sem miðuð er við þarfir allra
starfsmanna Norðlenska.
Lykilorð: Fræðsla, fræðsluáætlun, þarfagreining fræðslu, stjórnendur, starfsmenn.
Norðlenska is among the leading companies in the meat processing in Iceland. The
level of competition is high, and thus important to do well in all aspects of the
operation that could support the company’s competitive advantage. One of the most
important factors in order to keep competitive advantage is to have well-trained and
qualified employees, that, as a result, can maintain and improve their work.
The aim of the thesis is to provide Norðlenska with an educational program. It
is important for the company to distinguish what kind of education is needed. In order
to do that, a training needs analysis was applied and questionnaire with open-ended
questions were presented to the employees.
The educational plan will focus on specializing the employees into specific
roles, instead of all employees attending the same courses. Thus, performance can be
maximized and funds used effectly. All employees will attend necessary courses, such
as first aid training, food sanitation course, and communications course.
Employee training and education should rather be considered as an investment
in human resources than waste of funds.
In the last section of the thesis, is a one-year educational program, based on
the needs of all the employees of Norðlenska.
Keywords: Education, educational plan, team building, training needs analysis,
managers, workers.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS-ritgerð Stefanía Árdís-prentun.pdf | 445.01 kB | Lokaður til...01.08.2136 | Heildartexti | ||
Stefanía - Efnisyfirlit.pdf | 203.4 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Stefanía - heimildaskrá.pdf | 258.57 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna |