is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26306

Titill: 
  • Við getum unnið saman : greinargerð með bæklingi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Greinargerð þessi og meðfylgjandi bæklingur er lokaverkefni til B.Ed. gráðu í þroskaþjálfafræði við íþrótta-, tómstunda og þroskaþjálfadeild Háskóla Íslands. Meginmarkmið verkefnisins var að afla þekkingar á því hvaða upplýsingar geta auðveldað samskipti erlendra foreldra fatlaðra barna og fagfólks í þjónustuteymi barnsins. Fjallað er um mikilvægi fræðslu um lög og reglugerðir, viðhorf til fötlunar og stöðu fatlaðra barna í mismunandi samfélögum, valdeflingu foreldra og leiðir til þess að fyrirbyggja misskilning í samvinnu við fjölskyldu og sérfræðinga. Viðtöl við þroskaþjálfa sem hafa unnið í mörg ár með þessum minnihlutahópi leiddu í ljós mikilvægustu þættina sem geta haft áhrif á samvinnu fagfólks og foreldra fatlaða barna af erlendum uppruna á leikskólum.
    Fjallað er um mismunandi fræðileg sjónarmið á fötlun og tengsl milli viðhorfs samfélagsins og stöðu fólks með fötlun. Unnið var út frá fræðilegum heimildum um staðalímyndir á fötlun, viðhorf til fötlunar í mismunandi menningarheimum og heimildum sem tengjast hugmyndafræði um snemmtæka íhlutunina á leikskólum. Niðurstaðan er sú að æskilegt er að góð fræðsla um stöðu fatlaðra barna á Íslandi, opinbera stefnu í málefnum fólks með fötlun og um réttindi barns og foreldra hafi átt sér stað í upphafi íhlutunar. Valdefling foreldra er einnig mikilvægur þáttur í samskiptum innan þjónustuteyma.
    Tilgangur bæklingsins er að kynna erlendum foreldrum fatlaðra barna mikilvægar grundvallarupplýsingar um þjónustu fyrir leikskólabörn með sérþarfir í Reykjavík og hvetja fjölskyldur til samvinnu við fagfólk ásamt því að valdefla foreldra og segja til um mikilvægt hlutverk þeirra í ferli íhlutunar.

Samþykkt: 
  • 31.10.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/26306


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
1Ekaterina_FIXED_Greinargerð.pdf506.02 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna
Ekaterina_FIXED_bæklingur.pdf333.18 kBOpinnFylgiskjölPDFSkoða/Opna
EG_yfirlysing_skemman.pdf21.96 kBLokaðurYfirlýsingPDF