is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26331

Titill: 
  • Að bjarga sér frá drukknun : sundfærni barna í 5. bekk
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Á hverri klukkustund á hverjum degi týna yfir 40 manns lífi vegna drukknana á heimsvísu. Drukknanir eru stórt alþjóðlegt vandamál sem er bæði dýr og mikil byrði fyrir samfélög heimsins.
    Í þessu verkefni er fjallað um drukknanir og þá sundfærni sem einstaklingur er talinn þurfa að búa yfir til að geta bjargað sér frá drukknun í erfiðum aðstæðum. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna sundfærni barna í 5. bekk í íslenskum grunnskólum með fjölþættu sundprófi. Sundprófið var lagt fyrir 185 nemendur úr fimm grunnskólum víðsvegar um landið.
    Rannsóknin var þversniðsrannsókn sem skiptist upp í fimm mælingar; 200 m sund (þar af 50 m á bakinu), að stökkva út í djúpt vatn, flot, velta og stefnubreytingar.
    Niðurstöður leiddu í ljós að 82% nemenda í 5. bekk í íslenskum grunnskólum stóðust fjölþætta sundprófið og eru þar með taldir líklegir til að geta bjargað sér frá drukknun í erfiðum aðstæðum. Alls 18% nemenda stóðust hins vegar ekki prófið þar sem þeir náðu ekki einum eða fleiri liðum. Ekki reyndist marktækur munur á tíma í 200 m sundi milli kynja og ekki höfðu ársfjórðungar fæðingardaga heldur áhrif á tíma í 200 m sundi. Marktæk tengsl reyndust vera á milli tíma í 200 m sundi og annars vegar getu til að stökkva út í djúpt vatn og hins vegar hversu oft þátttakandi þurfti að hvílast á 200 m sundi. Fleiri drengir en stúlkur stóðust einstök próf en ekki reyndist tölfræðilega marktækur munur þar á milli.
    Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa mikilvægar upplýsingar um stöðu á sundfærni barna í 5. bekk í íslenskum grunnskólum í dag. Mikilvægt er að halda áfram með rannsóknir á þessu sviði til að koma í veg fyrir drukknanir í framtíðinni. Þörf er á að hanna alþjóðleg stöðluð sundpróf til að skera úr um hvort einstaklingur sé syndur og þar af leiðandi líklegri til að geta bjargað sér frá drukknun í ákveðnum aðstæðum.

Samþykkt: 
  • 31.10.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/26331


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Að bjarga ser fra drukknun- M.Ed. Sigrun Halldorsdottir - Lokautgafa.pdf1.42 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
sigrún_yfirlýsing.pdf448.23 kBLokaðurYfirlýsingPDF