Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26333
Ég hef starfað í um átta ár við sérkennslu barna á leikskólanum Hagaborg. Hugmyndin að gerð handbókar fyrir lokaverkefni mitt í þroskaþjálfafræðum kviknaði haustið 2015 þegar ákveðin mannaskipti og fjölgun urðu í starfsmannahópnum og ég fann þörfina á að það væri hægt að útskýra grunninn að starfinu okkar, verklag og vinnubrögð fyrir nýju starfsfólki. Eins er vont að missa þekkingu úr starfinu þegar reynt starfsfólk hverfur á annan vettvang. Hugmyndin er að þessi handbók sé í stöðugri mótun eftir því sem starfið mótast. Þetta lokaverkefni er því byrjunin á handbók sem mun stækka og breytast á komandi árum. Í starfinu nýtum við þekkingu ráðgjafa Greiningar-og ráðgjafarstöðvar ríkisins, ásamt fjölmörgum öðrum fagmönnum sem koma að lífi barnanna sem við vinnum með. Hver leikskóli hefur sína reynslu, sitt verklag og þekkingu í sérkennslumálum. Því byggjast upp mismunandi þekking og hefðir í hverjum leikskóla þó að starfið byggi á sömu fræðum. Þessi greinargerð fjallar um hvaða hugmyndafræði starfið byggir, og hvaða lög og reglugerðir móta þjónustuna sem við veitum börnunum og fjölskyldum þeirra.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Solveig_Halldorsdottir_Greinargerd.pdf | 432.31 kB | Lokaður til...04.09.2035 | Greinargerð | ||
Solveig_Halldorsdottir_Handbok.pdf | 981.19 kB | Lokaður til...04.09.2035 | Handbók | ||
Solla lokaverkefni.jpg | 1.31 MB | Lokaður | Yfirlýsing | JPG |