Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/263
Kennsluhandbækurnar eru hannaðar til kennslu nemenda í 7. bekk grunnskóla í
myndmennt og náttúrufræði með það að leiðarljósi að uppfylla markmið Aðalnámskrár
grunnskóla frá árinu 1999. Aðalmarkmiðin eru að nemendur kynnist reikistjörnunum og
hugtökum úr himingeimnum á lifandi hátt og komið sé til móts við þau markmið sem eru
að finna í aðalnámskránni varðandi myndmenntar- og náttúrufræðiþáttinn með
einstaklingsmiðað nám í huga og fjölbreyttar kennsluaðferðir.
Í náttúrufræðihandbókinni er allt það námsefni sem ætlunin er að kenna um
himingeiminn og er farið ýtarlega yfir það efni. Búið er að útbúa námsáætlun fyrir 12
vikur þar sem hver tími er fyrirfram ákveðinn með fyrirvara þó um ófyrirsjáanlegar
breytingar. Í bókinni eru spurningar og fróðleikur um himingeiminn og efni tengt honum
og eyðublöð til að ljósrita fyrir kennslustundir. Ljósritin eru bæði kennsluverkefni,
matsblöð um hæfni og árangur nemendanna og matsblöð fyrir kennara um það hvernig til
tókst í kennslunni.
Í kennarahandbókinni í myndmennt er byrjað á því að fara yfir litaskalann,
litablöndun, grunnform, skyggingar og fleira myndmenntartengt síðan er stutt umfjöllun
um reikistjörnurnar, tunglið og sólina til upprifjunar. Einnig er að finna spurningar um
himingeiminn og fróðleik um efnið. Í bókinni er kennsluáætlun fyrir 12. vikur líkt og í
náttúrufræðihandbókinni me fyrirvara um einhverjar minniháttar breytingar.
Leiðbeiningar eru um framkvæmd aðferða í myndmenntarþættinum bæði fyrir kennara og
nemendur og þar uppgefin bæði efni, áhöld og uppskriftir aðferðanna. Einnig myndir af
fullunnum verkefnum. En við framkvæmdum hluta af vinnunni í myndmennta áfanganum
til þess að fá meiri tilfinningu fyrir verkefninu. Þá eru matsblöð bæði til að fylla út til að
fylgjast með hæfni nemendanna og svo matsblöð um hvernig til tókst svo kennari geti
betur gert sér í hugarlund hvernig til hafi tekist og viti hvað betur megi fara næst og hvað
ekki.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð.pdf | 141.9 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
kennsluhandbók-myndmennt.pdf | 1.52 MB | Opinn | Kennsluhandbók-myndmennt | Skoða/Opna | |
kennsluhandbók-stjörnufræði.pdf | 1.76 MB | Opinn | Kennsluhandbók-stjörnufræði | Skoða/Opna |