is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2640

Titill: 
  • Tengsl hreyfingar og valinna lífsstílssjúkdóma
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð fjallar um tengsl hreyfingar og þriggja ólíkra lífsstílssjúkdóma; offitu, krabbamein og streitu. Gerð er grein fyrir hverjum sjúkdómi, orsökum hans og hvernig hreyfing getur verið forvörn gegn þeim eða hluti meðferðar. Einnig er minnst á þær hreyfiráðleggingar sem mælt er með til að halda góðri heilsu. Helstu niðurstöður eru þær að hreyfing hefur jákvæð áhrif á þessa sjúkdóma og þá bæði lífeðlisfræðilega og sálfræðilega. Hún stuðlar meðal annars að þyngdartapi, bætir þol og styrk, eflir ónæmiskerfi líkamans, styrkir hjarta- og æðakerfi og hefur áhrif á bindi-prótein ýmissa hormóna. Að auki stuðlar hreyfing að bættri sjálfsmynd og getur leitt hugann að öðru um stund ef miklar áhyggjur eru til staðar.
    Til að minnka hættuna á sjúkdómum sem tengjast hreyfingarleysi ætti að stunda hreyfingu af meðalákefð daglega og auk þess er æskilegt að stunda erfiða hreyfingu að minnsta kosti tvisvar í viku. Meiri hreyfingar er þó þörf til að koma í veg fyrir aldurstengda þyngdaraukningu.

Samþykkt: 
  • 14.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2640


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
la_fixed.pdf378.87 kBLokaðurHeildartextiPDF
heimla_fixed.pdf58.35 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna