is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26486

Titill: 
  • Í skugga karlmanna: Um valdakerfi feðraveldisins innan safna
  • Titill er á ensku In the Shadow of Man: The Power of Patriarchy inside Museums
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Ritgerðin fjallar um með hvaða hætti valdakerfi feðraveldisins birtist innan safna. Rannsóknir hafa leitt í ljós að söfn séu karllægar stofnanir sem dragi úr sögu og menningu kvenna með þeim hætti að saga karla er miðlæg og upphafin, á meðan konur eru jaðarsettar eða jafnvel ósýnilegar í sýningum þeirra. Sýningar Byggðasafns Hafnarfjarðar og Byggðasafns Árnesinga voru greindar með það markmið að sýna á hvaða hátt framsetningar safna eru litaðar af valdakerfi feðraveldisins. Við greininguna var stuðst við rannsókn frá árinu 1976 á New York State Museum þar sem skoðað var hvernig hægt væri að gera framsetningu á kyni og kynþáttum innan sýninga safnsins jafnari. Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að mjög hallaði á konur og minnihlutahópa innan safnsins og að þetta ójafnvægi birtist sérstaklega í fimm myndum, það er ósýnileika, staðalímyndum, misvægi, klofningu eða einangrun og hlutdrægni tungumálsins. Greiningin á sýningum byggðasafnanna leiddi í ljós að alla fimm þættina var þar að finna í einhverri mynd. Talsverður munur var þó á sýningum safnanna og í ljós kom að valdakerfi feðraveldisins litar sýningar Byggðasafns Hafnarfjarðar mun meira heldur en Byggðasafns Árnesinga.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis is about how the power of patriarchy appears inside museums. Researches have shown that museums are male-dominated institutions which don´t represent women´s history and culture as well as the history of males. Men are central in their representations while women are marginalized or even invisible. The exhibitions of Byggðasafn Hafnarfjarðar and Byggðasafn Árnesinga were analyzed as examples of how their representations are influenced by the patriarchy. The analysis was based on a study on the New York State Museum from 1976 that looked at how the museum could make its representation on gender and race less biased. The conclusion of that analysis was that women and minority groups were not well represented and this imbalance was especially apparent in items like invisibility, stereotyping, imbalance/selectivity, fragmentation/isolation and linguistic bias. The analysis of the two exhibitions in Hafnarfjörður and Árnes showed that all these five items were present in some form. There was though a considerable difference in these exhibitions, and the power of patriarchy stained the exhibition of Byggðasafn Hafnarfjarðar much more than the one in Byggðasafn Árnesinga.

Samþykkt: 
  • 4.1.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/26486


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Í skugga karlmanna. Um valdakerfi feðraveldisins innan safna.pdf1.22 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing um meðferð lokaverkefna.pdf337.82 kBLokaðurYfirlýsingPDF