is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26607

Titill: 
  • Svo lengi lærir sem lifir. Athugun á því hversu margir ljúka formlegri prófgráðu eftir raunfærnimat
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar er að skoða hversu margir ljúka formlegu námi í iðngreinum eftir að hafa farið í gegnum raunfærnimat. Raunfærnimat er ein þeirra leiða sem farin hefur verið til að fjölga nemendum sem ljúka námi frá framhaldsskóla eins og stjórnvöld vinna að. Notuð voru gögn frá IÐUNNI fræðslusetri um þá sem lokið höfðu raunfærnimati og þau tengd við nemendaskrá og prófaskrá Hagstofu Íslands. Niðurstöður leiddu í ljós að rúmlega þriðjungur (36,2%) þeirra sem létu meta raunfærni sína í iðngreinum á tímabilinu 2007-2012 höfðu lokið formlegu námi árið 2013. Af þeim sem innritaðir voru í nám á tímabilinu höfðu 55,6% lokið prófgráðu. Niðurstöður bentu til þess að rúmlega helmingur (54,3%) þátttakenda hefði lokið prófi frá sömu grein og raunfærni var metin í og að þeir hefðu þurft tíma til að ljúka námi. Einnig mátti sjá að 36,7% fóru ekki í nám eftir að hafa gengist undir mat á raunfærni. Miðað við þessar niðurstöður má draga þá ályktun að fjöldi þeirra sem lýkur formlegri prófgráðu í kjölfar raunfærnimats sé ásættanlegur. Árangurinn mætti vera betri til að marki stjórnvalda væri náð og því er mikilvægt að kanna hvort aðgengi að námi á framhaldsskólastigi sé nægjanlega gott fyrir þá sem fara í raunfærnimat.

  • The aim of this study is to see how many completed formal education in trades after having undergone validation. Validation is one of the measures that have been taken to increase the number of students who graduate from college as government work upon. Data from the educational institution IDAN was used on those who have completed validation and associated with the student and examination record of Statistics Iceland. The results show that over a third (36.2%) of those who were assessing their competence in trades during the period 2007 to 2012 completed studies in 2013. Of those who were enrolled in education over the period were 55.6% graduates. Results indicated that more than half (54.3%) of the participants graduated from the same profession and competence assessed in and they needed time to complete their studies. The results also showed that 36.7% did not seek education after having undergone validation. Based on these results it can be concluded that the number of those completing formal degree following validation is acceptable. The result could be better so the government goal would be considered reached, it is important to examine whether access to secondary education is sufficiently good for those undergoing validation.

Samþykkt: 
  • 16.1.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/26607


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Yfirlýsing.jpeg473.42 kBLokaðurYfirlýsingJPG
Sólveig Indriðadóttir - lokaskjal M.A. .pdf991.25 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna