is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/267

Titill: 
  • Movement assessment battery for children (M-ABC) : forprófun
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Rannsóknir sýna að 5-15 % skólabarna eigi við einhverskonar hreyfiörðugleika að stríða. Þessi börn geta ekki sýnt fulla þátttöku í verkum og athöfnum er varða daglega iðju. Hreyfifærni er því einn þeirra þátta sem getur ákvarðað að hvaða marki börn geta tekið þátt í skólastarfi. Nákvæm greining og túlkun hreyfiörðugleika eykur möguleika á áhrifaríkri íhlutun. Hérlendis eru stöðluð hreyfiþroskapróf af skornum skammti. Íslenskt fagfólk hefur notast við óformlega þýdd próf þar sem erlend viðmið eru notuð við túlkun niðurstaðna. Eitt þessara prófa er matstækið Movement Assessment Battery for Children (M-ABC. Tilgangur rannsóknarinnar var að forprófa matstækið M-ABC. Með forprófuninni var frammistaða íslenskra sjö og átta ára barna könnuð. Aflað var upplýsinga um hver heildarframmistaða sjö til átta ára íslenskra barna væri á matstækinu, hvort munur væri á heildarfarammstöðu íslenskra barna og bandarísku prófstaðlanna og í framhaldi af því hvort merkjanlegur munur væri frammistöðu íslensku barnanna og þeirra bandarísku á einstökum prófþáttum. Til að framkvæma forprófun á M-ABC var valin megindleg rannsóknaraðferð sem flokkast undir aðferðafræðilegar rannsóknir og lýsandi tölfræði var notuð við greiningu gagna. Þátttakendur í rannsókninni voru sjö til átta ára nemendur í öðrum bekk Giljaskóla á Akureyri eða alls 47 nemendur. Kannaður var sá hluti matstækisins sem snýr að aldurshópi þátttakenda. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að aðeins var merkjanlegur munur á frammistöðu íslensku og bandarísku barnanna á einum prófþætti innan matstækisins. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að merkjanlegur munur var á fínhreyfiverkefninu „blómaslóð” en á því verkefni stóðu bandarísku börnin sig betur en þau íslensku. Einnig var það tilfinning matsmanna að jafnvægisþættir matstækisins greindu ekki nægilega vel á milli barna með og án hreyfiörðugleika. Þessar niðurstöður ættu að veita gagnlegar vísbendingar um hvernig túlka beri niðurstöður íslenskra barna á M-ABC og auka líkur á vali réttrar íhlutunar.
    Lykilhugtök: Hreyfifærni, iðja, Movement Assessment Battery for Children (M-ABC), skólabörn.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2003
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/267


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
movement.pdf10.21 MBTakmarkaðurMovement Assessment Battery for Children - heildPDF
movement-e.pdf80.28 kBOpinnMovement Assessment Battery for Children - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
movement-h.pdf151.79 kBOpinnMovement Assessment Battery for Children - heimildaskráPDFSkoða/Opna
movement-u.pdf112.34 kBOpinnMovement Assessment Battery for Children - útdrátturPDFSkoða/Opna