is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2778

Titill: 
  • Hitanæmar degron samsætur fyrir RPT1, RPT4 og RPT6 genin í Saccharomyces cerevisiae
Titill: 
  • Generation of temperature sensitive degron alleles for RPT1, RPT4 and RPT6 in UBR1 overexpressing Saccharomyces cerevisiae strains
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið rannsóknarverkefnisins var að búa til hitanæmar degron samsætur fyrir þrjú gen, RPT1, RPT4 og RPT6. Þar sem Ubr1 prótínið er nauðsynlegt fyrir niðurbrot degron merktra prótína, voru hitanæmu degronin innlimuð í Saccharomyces cerevisiae stofna sem yfirtjá UBR1 genið, til þess að auka líkurnar á því að sjá skýrar svipgerðir. Eiginleikar og svipgerðir S. cerevisiae stofnanna sem höfðu innlimað degron samsæturnar voru einnig rannsakaðar. Verkefnið var í raun þrískipt. Í fyrsta lagi þurfti að búa til gersveppastofna sem yfirtjá UBR1 genið. Í öðru lagi þurfti að smíða þrjú mismunandi plasmíð. Plasmíð með hitanæmu degron kerfi fyrir hvert RPT gen. Þ.e. rpt1-td, rpt4-td og rpt6-td. Að lokum þurfti að innlima plasmíðin með rpt degron kerfunum inn á litning gersveppastofnanna sem yfirtjá UBR1 og rannsaka degron stofnana sem þannig fengust.
    Rannsóknin sýndi að gersveppastofnar með hitanæm degron kerfi fyrir RPT1, RPT4 og
    RPT6 brjóta Rpt prótínin niður og fyrir vikið breytist bæði vöxtur og svipgerð stofnanna. Mikið hægir á vexti þeirra þar sem þeir festast í G2/M fasa frumuhringsins. Sveppirnir eru stærri og óvenjulegri í lögun en viðmið.

Samþykkt: 
  • 25.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2778


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
_Halla_Halldorsdottir_fixed.pdf4.27 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna