is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2804

Titill: 
  • Hegðun nemenda í bekkjarstarfi og orðræður um kyngervi. Fræðileg umfjöllun út frá póststrúktúralísku sjónarhorni
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Hér verður sýnt fram á hvernig fræðilegar áherslur í kynjafræðirannsóknum hafa þróast
    seinustu ár og mikilvægi þeirrar þróunar þegar athygli kennara og samskipti hvað varðar kynin í bekkjarstarfi eru athuguð. Einnig verða samskipti og athygli kennara varðandi nemendur skoðuð með tilliti til póststrúktúralískts sjónarhorns og út frá því verður ráðandi orðræðu um kvenleika og karlmennsku fléttað inn í margbreytilega hegðun nemenda. Þar næst verður fjallað um nokkrar hugmyndir sem taldar eru geta bætt
    umhverfi bekkjarins í átt að jafnrétti fyrir alla, óháð hegðun og kyni. Niðurstöður bentu
    til að áherslubreytingar sem átt hafa sér stað í kynjafræðirannsóknum hafa gert hópa
    sýnilega sem áttu það til að gleymast í fyrri rannsóknum. Ástæðan er að
    póststrúktúralískt sjónarhorn, sem oft er notað í kynjafræðirannsóknum í dag og tekur
    tillit til margbreytileika hegðunar í stað tvíhyggju eins og eldri rannsóknir áttu til. Til þess að skapa umhverfi, þar sem allir fá að njóta sín í bekkjarstarfi, er mikilvægt að meta hvern og einn nemenda á eigin forsendum – óháð ráðandi orðræðu um kyn. Hér verður aðeins notast við rannsóknir og greinar sem fjalla um þetta efni og niðurstöður ritgerðarinnar byggðar á því.

Samþykkt: 
  • 26.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2804


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
pd_fixed.pdf197.22 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna