is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/281

Titill: 
  • Eftirfylgd iðjuþjálfa : viðhorf skjólstæðinga til eftirfylgdar iðjuþjálfa
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftirfylgd er mikilvægur þáttur í þjónustu iðjuþjálfa. Til að hún skili hámarksárangri þarf hún að vera skjólstæðingsmiðuð. Skjólstæðingsmiðuð þjónusta byggir á ákvarðanatöku og stjórn skjólstæðingsins sjálfs í eigin íhlutun. Rannsókn sem byggir á viðhorfum skjólstæðinga til iðjuþjálfunar er því hluti af því að byggja upp skjólstæðingsmiðaða þjónustu. Hugmyndafræði iðjuþjálfunar byggir m.a. á því að íhlutun iðjuþjálfa geti farið fram í umhverfi skjólstæðinganna. Eftirfylgd iðjuþjálfa fellur því vel að þessari hugmyndafræði þar sem hún getur farið fram hvar sem er í samfélaginu.
    Tilgangur þessa verkefnis var tvíþættur. Annars vegar að taka saman fræðilegar heimildir um stöðu eftirfylgdar á Íslandi og erlendis og um afstöðu skjólstæðinga iðjuþjálfa erlendis til eftirfylgdar. Hins vegar að leggja spurningalista fyrir skjólstæðinga iðjuþjálfa hérlendis og fá þannig fram upplýsingar um viðhorf þeirra til eftirfylgdar iðjuþjálfa. Úrtak könnunarinnar samanstóð af einstaklingum sem fengið hafa iðjuþjálfun og útskrifuðust af endurhæfingardeild eða öldrunardeild Kristnesspítala Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri árið 2001. Samtals 34 einstaklingar en svör fengust frá 27 einstaklingum. Rannsóknaraðferðin var megindleg, lýsandi könnun framkvæmd með spurningalista sem gerður var sérstaklega fyrir þessa rannsókn. Engin rannsókn hefur verið gerð hérlendis á viðhorfum skjólstæðinga til eftirfylgdar og gildir það sama um rannsóknir erlendis. Helstu niðurstöður eru að tæplega 90% þátttakenda í rannsókninni finnst frekar mikilvægt eða mjög mikilvægt að hafa aðgang að eftirfylgd iðjuþjálfa eftir útskrift af heilbrigðisstofnun. Samanborið við rannsóknir á þeirri eftirfylgd sem iðjuþjálfar veita kemur í ljós að þátttakendur þessarar rannsóknar telja sig í mörgum tilvikum þarfnast annars konar þjónustu í eftirfylgd. Þessar niðurstöður gefa því tilefni til að veita þörfum og viðhorfum skjólstæðinga iðjuþjálfa frekari athygli.
    Lykilhugtök: Eftirfylgd iðjuþjálfa, skjólstæðingsmiðuð þjónusta, viðhorf skjólstæðinga.

Samþykkt: 
  • 1.1.2002
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/281


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
eftirfylgd.pdf320.53 kBOpinnEftirfylgd iðjuþjálfa - heildPDFSkoða/Opna
eftirfylgd-f.pdf127.44 kBOpinnEftirfylgd iðjuþjálfa - forsíðaPDFSkoða/Opna