is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Lagadeild > Lokaverkefni í lagadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2970

Titill: 
  • Samsköttun móður- og dótturfélaga yfir landamæri
Titill: 
  • Group relief for parent company and subsidiary
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Stofnun dótturfélaga með heimilisfesti í öðru landi hefur aukist mikið, þetta má rekja til
    vaxandi alþjóðavæðingar og útrásar íslenskra fyrirtækja á grundvelli frjáls
    fjármagnsflutnings og staðfesturéttar. Hefur þetta leitt til umræðna í þjóðfélaginu um réttindi
    þessara félaga. Í ritgerðinni er leitast við að svara því hvort ákvæði 55. gr. laga um tekjuskatt
    nr. 90/2003 (tsl.), sem fjallar um samsköttun hlutafélaga, standist þær kröfur sem
    samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES samningurinn) gerir til landsréttar.. Til að
    svara þessari spurningu er skoðuð sambærileg löggjöf helstu nágrannaríkjanna. Jafnframt er
    vikið að skuldbindingum Íslands að EES samningnum og lagður til grundvallar
    stefnumarkandi dómur Evrópudómstólsins tengdur efninu og áhrif hans innan EES.
    Réttarheimildir og dómar íslenskra dómstóla tengdir efninu eru einnig til umfjöllunar.
    Niðurstaðan er sú, að æskilegt er að gera breytingar á 55. gr. tsl., annars vegar til þess að
    uppfylla skuldbindingar sem leiða af EES samningnum og hins vegar til að auðvelda litlum
    fyrirtækjum, sem hafa hvorki fjárhagslegt bolmagn eða tíma til að standa í málarekstri fyrir
    dómstólum, að hagræða rekstri sínum. Í frumvarpi með lögum nr. 154/1998 um tekjuskatt og eignarskatt, kemur fram að markmið með setningu lagagreinarinnar hafi verið að gera fyrirtækjum kleift að hagræða rekstri sínum.

Samþykkt: 
  • 3.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2970


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Utdrattur_Ingibjorg_vor2009_fixed.pdf115.49 kBOpinnUtdratturPDFSkoða/Opna
BSritgerd_Ingibjorg_vor2009_fixed.pdf164.52 kBOpinnMeginmalPDFSkoða/Opna