is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/303

Titill: 
  • Það er leikur að læra : leikurinn sem námsleið
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í starfi leikskóla gegnir leikurinn mikilvægu hlutverki og í raun og veru er hann hornsteinn alls leikskólastarfs. Á síðustu áratugum hafa miklar breytingar átt sér stað í þjóðfélaginu og umhverfinu og speglast þær að einhverju leyti í leik barnanna. Nú á dögum horfa kennarar öðrum augum á leikinn og reynsla barnanna er ólík þeirri reynslu sem börn höfðu áður fyrr.
    Fjallað verður stuttlega um leikinn í ljósi kenninga fyrri alda og svo í ljósi nútímakenninga og má þar helst nefna kenningar sálkönnuða, vitþroskakenningu Piaget, kenningar Vygotsky, boðskiptakenningar og kenningar Bergström um tengsl leiks við eðlilegan þroska heilans. Hugmyndafræði John Dewey verður kynnt lítillega í sambandi við leikinn sem námsleið. Kenningar Dewey hafa haft mjög mikil áhrif á skólastarf í öllum heiminum og einkunnarorð hans „að læra með því að framkvæma“ (learning by doing) eru enn við líði.
    Leikskólakennarar velta einatt fyrir sér hvert hlutverk þeirra er í starfi og hverjar skyldur þeirra eru gagnvart börnunum og samstarfsfólki. Farið verður stuttlega yfir helstu hlutverk og þá sérstaklega hlutverk þeirra í leik barna. Gert er grein fyrir könnun sem gerð var á meðal starfsmanna tveggja leikskóla á Akureyri. Leikskólarnir voru valdir með það í huga að þeir væru sem ólíkastir, annar gamalgróinn og ríkur af hefðum en hinn nýlegur og vinnur með opið dagskipulag, báðir eiga það hins vegar sameiginlegt að njóta virðingar í skólasamfélaginu. Kannað var viðhorf starfsmanna hvort þeir teldu sig vera að nota leikinn markvisst sem námsleið. Helsta niðurstaða könnunarinnar er sú að það vantar umræðu meðal starfsmanna um leikinn og hvernig og hvort það sé hægt að nota hann sem námsleið.
    Að lokum eru settar fram tillögur um hvernig má efla umræðu um leikinn sem námsleið í leikskólum með það að markmiði að gera starfsmenn betur meðvitaða um hlutverk sitt.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/303


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
thaderleikur.pdf645.15 kBTakmarkaðurÞað er leikur að læra - heildPDF
thaderleikur_e.pdf114.01 kBOpinnÞað er leikur að læra - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
thaderleikur_h.pdf107.32 kBOpinnÞað er leikur að læra - heimildaskráPDFSkoða/Opna
thaderleikur_u.pdf88.02 kBOpinnÞað er leikur að læra - útdrátturPDFSkoða/Opna