is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/309

Titill: 
  • Lýðræði í leikskólum : hvernig má efla það?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessu lokaverkefni er fjallað um lýðræði í leikskólum og leitað svara við því hvernig efla megi lýðræðisleg vinnubrögð í þeim. Skoðaðar verða hugmyndir um lýðræði almennt ásamt hugmyndum ýmissa fræðimanna um menntun í lýðræðislegum anda. Fjallað verður um börn og lýðræði, lýðræði í leikskólum og hvort og þá hvernig leikskólar geti verið lýðræðisleg samfélög.
    Skýrt verður frá viðhorfskönnun sem gerð var í þremur leikskólum á Akureyri og helstu niðurstöðum hennar. Í könnuninni var leitast við að fá viðhorf leikskólakennara til lýðræðis, hvernig þeir skilgreindu lýðræði, hvort lýðræði ríkti í þeirra leikskólum og hvernig hægt væri að efla lýðræðisleg vinnubrögð í leikskólum.
    Helstu niðurstöður sýndu að börn hafa ákveðin réttindi sem einstaklingar og ber leikskólanum að huga að þeim. Leikskólakennarar gegna viðamiklu hlutverki í leikskólanum og var sýnt fram á mikilvægi þeirra í eflingu lýðræðis ásamt þátttöku barnanna. Niðurstöður úr viðtölunum sýndu að flestir viðmælendurnir skilgreindu lýðræði á þann hátt að það sé einhverskonar stjórnarform þar sem lýðurinn eða fólkið ræður en ekki einhver einn.
    Leikskólakennararnir voru flestir sammála því að einhverskonar lýðræði ríkti í þeirra leikskóla en það mætti þó vera meira. Viðmælendur lögðu mikla áherslu á hlutverk starfsfólks við eflingu á lýðræðislegum vinnubrögðum og töldu að það þyrfti að fá fræðslu þeim tengdum og viðhalda þekkingu sinni ásamt því að vera meðvitað um hlutverk sitt gagnvart börnum og samstarfsfólki.

Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/309


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lydraediileiksk.pdf277.69 kBOpinnLýðræði í leikskólum - heildPDFSkoða/Opna