is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3103

Titill: 
  • Útvistun í opinberri stjórnsýslu : hagræðingarmöguleikar og hindrarnir
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Verkefnið fjallar um útvistun verkefna á sviði menningarmála í opinberri stjórnsýslu. Í fræðilegum hluta þess er fjallað um útvistun og staðsetningu hugtaksins í fræðunum. Tengsl útvistunar við hin viðfangsefni stjórnunar-, stefnumótunar- og samstarfsfræða eru skoðuð sem og helstu hvatar þess að ráðist er í útvistun verkefna. Rannsóknin byggist á hugmyndafræði leitandi rannsókna þar sem fjöldi viðtala er tekin við einstaklinga sem eru sérfróðir á ýmsum sviðum tengdum viðfangsefninu. Tilviksathugun er jafnframt unnin þar sem skoðað er hvaða rekstrarform er best til þess fallið að ná fram markmiðum sem sett eru með rekstri Menningarhúss á Akureyri.
    Niðurstöður bentu eindregið til þess að rétt væri að útvista rekstur Menningarhúss á
    Akureyri. Sú niðurstaða byggist m.a. á þeirri staðreynd að skilgreindir lykilþættir
    árangurs í rekstri eru skilvirkni í stjórnsýslu, afnám pólitískra tengsla og skýrt umboð
    stjórnenda en slíkt fellur ekki að því rekstrarumhverfi sem Akureyrarbær býður. Þessi
    niðurstaða er í samræmi við fræðilega umfjöllun um kjarnahæfni, kjarnastarfsemi og
    virðiskeðju í tengslum við útvistun. Nánari greining leiddi svo til þeirrar niðurstöðu að
    rekstrinum yrði best fyrirkomið í umgjörð sjálfseignarstofnunar.
    Mikill samhljómur var í niðurstöðum rannsóknarinnar en veikileiki hennar felst helst í því hversu einsleitur viðmælendahópurinn var og því hversu lítið liggur fyrir af greiningum og rannsóknum til samanburðar.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 25.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3103


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
IOS_Utvistun_fixed.pdf876.71 kBLokaðurÚtvistun í opinberri stjórnsýslu - heildPDF