is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/313

Titill: 
  • Lestrarnám í leikskóla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð, sem er lokaverkefni til B.Ed. gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri, verður gerð grein fyrir nokkrum þroskaþáttum sem eru taldir einkenna börn á þessum aldri sem og hugmyndum um læsi og þróun þess.
    Síðastliðin ár hefur höfundur starfað í leikskólanum Gimli þar sem hann hefur unnið við hin svo kölluðu elstu barna verkefni, en markmið þeirra er að brúa bilið milli grunnskólan og leikskóla á sem þægilegastan hátt fyrir börnin. Í vetur hefur það starf meðal annars falist í að kenna lestur eftir aðferðum sem Helga Sigurjónsdóttir hefur þróað. Helga stendur fyrir lestrarskóla í Kópavogi fyrir 4-5 ára börn. Skoðað var hvernig aðferðir Helgu féllu að kenningum nokkurra fræðimanna um þroska og nám barna, hvernig fræðin telja að lestur þróist og einnig var skoðuð innleiðsla aðferða Helgu í leikskólanum Gimli og sá ávinningur sem leikskólinn Tjarnarsel telur sig hafa haft af þeim aðferðum sem teknar voru upp þar árið 2004.
    Til að undirbúa verkið fór höfundur á námskeið hjá Helgu og kynnti sér aðferð hennar. Tekin voru viðtöl við leikskólastjóra Tjarnasels sem og leikskólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra á Gimli en þeir tóku þátt í þróunarverkefninu á Tjarnarseli, sem deildarstjóri og verkefnastjóri.
    Viðfangsefni höfundar var að skoða hvernig þessir tveir skólar fletta lestrarkennslu inn í dagskipulagið og hvernig lestrarkennslan fellur að því starfi sem fyrir er. Jafnframt er ætlunin að skoða aðrar aðferðir eins og hljóm, markvissa málörvun, ljáðu mér eyra og tengja þær verkefninu. Til stuðnings við greininguna skoðaði ég sýn fræðimanna á barnið á leikskólaaldrinum og má þar nefna Piaget, Dewey og Vigotsky. Niðurstöðurnar voru í megindráttum þær að Tjarnarsel heldur áfram með lestrarkennsluna óbreytta á meðan Gimli hefur hugsað sér að sleppa bókunum og kenna börnunum frekar stafina í gegnum leikinn og nýta til þess umhverfið og náttúruna.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/313


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lestrarnamileiksk.pdf416.87 kBTakmarkaðurLestrarnám í leikskóla - heildPDF
lestrarnamileiksk_e.pdf89.3 kBOpinnLestrarnám í leikskóla - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
lestrarnamileiksk_h.pdf118.66 kBOpinnLestrarnám í leikskóla - heimildaskráPDFSkoða/Opna
lestrarnamileiksk_u.pdf109.64 kBOpinnLestrarnám í leikskóla - útdrátturPDFSkoða/Opna