is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3167

Titill: 
  • Kramið hjarta er heimsins þyngsta byrði : áhrif skilnaðar á börn
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. prófs við Háskólann á Akureyri. Í ritgerðinni er fjallað um áhrif skilnaðar á börn. Spurning ritgerðarinnar er: „Hvaða áhrif hefur skilnaður foreldra á líðan og hegðun barna?“
    Í ritgerðinni fjallar höfundur um þær breytingar sem verða í lífi barns er foreldrar skilja. Megintilgangur ritgerðarinnar er að skoða og fræðast um það hvaða áhrif skilnaður foreldra geti haft á líðan barns og hvaða breytingar verða á högum þess.
    Í fyrstu köflum ritgerðarinnar er fjallað um fjölskylduna. Hvaða hlutverki hún gegnir í daglegu lífi barns og hvað breytingar verða þegar foreldrar ákveða að búa ekki lengur saman. Þá er fjallað um þær ólíku fjölskyldugerðir sem barnið getur tilheyrt og hugsanlegar ástæður sem geta valdið því að foreldrar ákveða að skilja. Mikilvægt er að koma inná þessa þætti til að skilja betur hvað börn þurfa að þola áður en annað foreldrið ákveður að flytja út og skilnaður er endanlegur. Í köflunum á eftir er fjallað um líðan, viðbrögð og hegðun barna við skilnað foreldra. Þá er komið inná hvaða hlutverk leikskólinn og leikskólakennarinn hefur þegar börn verða fyrir áfalli. Það er talið að samstarf leikskóla og heimila geti skipt sköpun fyrir líðan barna. Einnig er fjallað um forsjá barna, hvort hún er sameiginleg eða í höndum annars foreldrisins, og líðan barna þegar ákvörðun um forsjá er tekin.
    Í lokin dregur höfundur saman helstu atriði um áhrif skilnaðar á börn. Í köflunum er einnig komið inná rannsóknir sem hafa verið gerðar um börn sem hafa gengið í gengum erfiða lífreynslu eins og skilnað foreldra sinna.
    Helstu niðurstöður höfundar eru að miklar breytingar verða í lífi barns þegar foreldrar þess skilja og í flestum tilvikum fylgir því vanlíðan. Vanlíðan hjá börnum getur brotist út í mismunandi hegðun. Því er mikilvægt að þeir sem standa næst barninu viti hvað það er að ganga í gegnum og geti brugðist við samkvæmt því

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 3.7.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3167


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kramið hjarta er heimsins þyngsta byrði .pdf554.94 kBLokaðurLokaritgerð áhrif skilnaðar á börnPDF
Forsíða,yfirlýsing ,útdráttur og þakkarorð.pdf82.7 kBOpinnForsíða,útdráttur,þakkarorðPDFSkoða/Opna