is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3219

Titill: 
  • Akureyri að vetri
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmiðið með verkefninu þessu er fá betri yfirsýn yfir samsetningu ferðamanna sem koma til Akureyrar að vetri. Gerð var markaðsrannsókn með það að markmiði að afla upplýsinga um það hvaða forsendur lágu að baki ákvörðunar ferðamanna um að koma til Akureyrar. Einnig hverjar eru ferðavenjur fólks yfir vetrartímann, hvað hafði fólk fyrir stafni, hversu lengi var dvalið og eftir hvaða leiðum aflaði fólk sér upplýsinga um Akureyri?. Stóðst sú afþreying og sú þjónusta sem ferðamenn nýttu sér í ferð sinni til Akureyrar þær væntingar sem til hennar voru gerðar. Eitt af markmiðum verkefnisins var að draga fram þá þætti í ferðaþjónustu yfir vetrartímann, sem mætti með einhverjum hætti bæta. Í verkefninu var farið yfir þá þætti sem máli skipta í ferðaþjónustu á svæðinu yfir vetrartímann, hverjir eru styrkleikar og veikleikar Akureyrar en þeir gætu verið allt aðrir að vetri en að sumri. Fjallað verður almennt um ferðaþjónustu og vetrarferðamennsku gerð sérstök skil. Megindlegar aðferðir voru notaðar við rannsóknina en gerð var hefðbundin könnunarrannsókn. Einnig voru nokkrir einstaklingar úr bæjarlífinu fengnir til að meta styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri Akureyrar sem vetrarferðamannastaðar en slíkt huglægt mat flokkast sem eigindleg rannsókn. Rannsóknin „Ferðavenjur Íslendinga yfir vetrartímann með áherslu á Norðurland“ sem gerð var 2008, hafði það að markmiði að svara sömu spurningum og verkefni þetta. Er sú rannsókn því notuð til samanburðar í þessu verkefni. Að ná til allra ferðamanna sem koma til bæjarins er ekki einfalt verkefni, möguleikar í gistingu eru fjölmargir og afþreying fjölbreytt og ekki hægt að greina ferðamenn frá heimamönnum á slíkum stöðum. Niðurstaðan var því sú að gera rannsókninna á eftir töldum stöðum,
     35 orlofsíbúðum í Furulundi 8 og 10
     Hótel KEA
     5 orlofshúsum Sæluhúsa á Akureyri
     12 orlofshúsum í Fögruvík 4 km norðan við Akureyri
    Ekki var hægt að hafa áhrif á hvernig úrtakið var samsett og því um ólíkindaúrtak að ræða, en 325 rannsóknum var dreift.
    Verkefnið var unnið fyrir Akureyrarstofu og ávinningur þeirra er fyrst og fremst sá að fá betri upplýsingar um hvað dregur ferðamenn til Akureyrar. Verkefnið á þar að auki að skila upplýsingum til samanburðar við eldri rannsókn. Úr þeim samanburði og endurteknum rannsóknum á ferðahegðun Íslendinga verður hugsanlega hægt að meta hvort fall fjármálamarkaða á Íslandi hafi áhrif á ferðamennsku innalands. Ferðaþjónustufyrirtæki á Akureyri eiga einnig að geta haft hag af þessu verkefni.
    Það var trú höfundar þegar lagt var af stað í þetta verkefni að á Akureyri væri vel búið að ferðamönnum yfir vetrartímann. Hér höfum við eitt besta skíðasvæði landsins og ágæta sundlaug, við höfum leikhús sem dregið hefur ferðafólk víða að og ágætt úrval veitingastaða. Spurningin er hvort önnur afþreying á Akureyrarsvæðinu sé næg á þessum tíma ársins. Er það von höfundar að verkefnið nái að draga fram þá veiku punkta, ef einhverjir eru, sem skilja á milli þess að Akureyri sé „nokkuð“ góður kostur yfir vetrartímann, til þess að Akureyri geti flokkast sem „virkilega áhugaverður“ og góður kostur til að ferðast til yfir vetrartímann.
    Lykilorð:
     Vetur
     Afþreying
     Ferðaþjónusta
     Markaðsrannsókn
     Vetrarferðamennska

Samþykkt: 
  • 14.7.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3219


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Akureyri ad vetri.pdf4.65 MBOpinn"Akureyri að vetri"-heildPDFSkoða/Opna