is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3246

Titill: 
  • Eru breytingar mælanlegar á kaupvenjum meðlætis eftir hrun?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð mín fjallar um rannsókn á því hvort breytingar mælanlegar hafi orðið á kaupvenjum viðskiptavina á meðlæti Kaffitárs. Markmið rannsóknarinnar er að komast að niðurstöðu um hvort breytinga sé þörf á meðlæti fyrirtækisins og verðlagi.
    Rannsóknin var í formi spurningalista sem sendur var á öll kaffihús fyrirtækisins og einnig í tölvutæku formi á viðskiptamannalista þess. Flestir svarendur voru búsettir á höfuðborgarsvæðinu þar sem kaffihús fyrirtækisins eru staðsett og var úrtakið 425 viðskiptavinir þess. Við tölfræðilega úrvinnslu rannsóknarinnar var notast við töflureikninn Excel.
    Af úrtakinu voru 60,71% spurningalista nothæfir. Ef skoðaðar eru niðurstöður rannsóknarinnar þá sést að flestir viðskiptavinir fyrirtækisins eru nokkuð ánægðir með gæði og úrval meðlætis. Helstu ábendingar voru um verðlag og skammtastærð. Til þess að auka sölu meðlætis er nauðsynlegt að breyta þessum liðum og einnig úrvali þess.
    Kaffitár hefur nú þegar gert breytingar út frá könnuninni og gaman yrði að fylgja þeim eftir með áframhaldandi rannsóknum.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 22.7.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3246


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lokaritgerd_fixed.pdf1.57 MBLokaður"Eru breytingar mælanlegar á kaupvenjum meðlætis eftir hrun?"- heildPDF