is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3293

Titill: 
  • Mat á starfstengdri sí- og endurmenntun ríkisstarfsmanna. Starfsemi fræðslusetursins Starfsmenntar
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið rannsóknarinnar er að greina hvernig starfstengd sí- og endurmenntunarþörf hjá ríkisstofnunum og ríkisstarfsmönnum er metin með hliðsjón af greiningarramma Blanchard og Thacker. Það er gert með því að skoða Fræðslusetrið Starfsmennt sem mörg aðildarfélög stéttarfélaga ríkisstarfsmanna og fjármálaráðuneytið standa að. Rannsökuð er þátttaka Starfsmenntar í fræðslumálum nokkurra ríkisstofnana og sí- og endurmenntun ríkisstarfsmanna sem hafa sótt hana þangað.
    Tekin voru viðtöl við þrjá stjórnendur Fræðslusetursins Starfsmenntar og fjóra stjórnendur fræðslumála hjá ríkisstofnunum auk fjögurra ríkisstarfsmanna sem sótt hafa sí- og endurmenntun hjá Starfsmennt. Við greiningu gagna var beitt sífelldri samanburðaraðferð (e. constant comparative method). Gögnin voru skoðuð og borin saman meðan á rannsókninni stóð.
    Niðurstöður rannsóknarinnar staðfesta að Starfsmennt sinnir því hlutverki sínu að meta fræðsluþörf fyrir margar ríkisstofnanir, einkum smærri stofnanir sem ekki hafa burði til að sinna því verkefni sjálfar en það er eitt af hlutverkum mann¬auðs-stjórnunar fyrirtækja og stofnana. Í flestum tilvikum eru námskeið á vegum Starfs-menntar launatengd og haldin á dagvinnutíma.
    Mat á árangri fræðslu eða sí- og endurmenntun er ómarkvisst hjá Starfsmennt og ríkisstofnunum. Þátttakendur á námskeiðum Starfsmenntar telja að Starfsmennt þurfi að kynna starfsemi sína betur. Flestir viðmælendur vilja sjá Starfsmennt verða fræðslumiðstöð allra hópa ríkisstarfsmanna.
    Viðmælendur telja starfstengda sí- og endurmenntun mikilvæga fyrir starfsemi stofnana og fyrir starfsmenn. Þeir telja að starfstengd sí- og endurmenntun skili sér í starfsánægju, aukinni starfshæfni starfsmanna og aukinni framleiðni og skilvirkni fyrir stofnanir.

Samþykkt: 
  • 31.1.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3293


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kristin_Helga_Gudmundsdottir_forsida_fixed.pdf46.37 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
Kristin_Helga_Gudmundsdottir_meginmal_fixed.pdf458.15 kBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna