Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3335
Í þessari ritgerð er fjallað um hvernig réttarfarsreglur í almennum einkamálum horfa við
endurskoðunarvaldi dómstóla. Reynt er að fjalla um sem flesta dóma sem fjalla um
álitaefnið og lesa það sem um efnið hefur verið ritað. Umfjöllunin skiptist í fjóra
meginhluta. Í fyrsta lagi er fjallað um stjórnarskrána og mannréttindi. Fjallað er um hvers
eðlis mannréttindi eru og hvort löggjafinn hafi frjálsar hendur þegar kemur að því að
koma þeim í framkvæmd. Í öðru lagi er fjallað um aðgang að dómstólum og
endurskoðunarvald dómstóla í málum er varða stjórnskipulegt gildi laga. Í lokin er fjalla
um hvernig þessi mál koma fyrir dóm. Í þriðja lagi er fjallað um sakarefni. Fjallað er um
kröfugerð í tengslum við sakarefnið. Einnig er lagt mat á hvaða eiginleika sakarefni þarf
að uppfylla til að njóta dómstólaverndar í skilning 24., 25. gr. EML og reglunnar um
lögvarða hagsmuni. Að lokum eru ýmis atriði í tengslum við mál er varða stjórnskipulegt
gildi laga reifuð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Sverrir_Palmason_fixed.pdf | 541.46 kB | Lokaður | Meginmál |