is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3407

Titill: 
  • Mat á árangri tíu tíma hópmeðferðar við kvíða barna: Klókir krakkar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Árangur tíu tíma hópmeðferðar við kvíðaröskunum barna var rannsakaður. Hann var
    borinn saman við árangur af sex tíma samskonar meðferð sem var athugaður árið
    2005. Aðalmarkmið rannsóknarinnar var því að sjá hvort fjögurra tíma viðbót, sem
    innihélt námsefni um félagsfærni, ákveðni og þrautalausn, myndi bæta árangurinn.
    Hópmeðferðin var haldin á BUGL og þátttakendur voru börn á aldrinum 7-13 ára og
    foreldrar þeirra (N=4). Börnin voru ýmist greind með ofurkvíðaröskun,
    aðskilnaðarkvíða eða áráttu-og þráhyggjuröskun. Árangurinn var fundinn með
    stöðluðum spurningalistum sem mátu kvíðaeinkenni (MASC), tilfinningaleg
    vandamál, erfiðleika í hegðun, félagsfærni, samskiptavanda (SDQ) og
    þunglyndiseinkenni (CDI). Einnig var lagður fyrir listinn Huglægt mat á kvíðahegðun
    barnsins þíns og listi sem mat ánægju foreldra með hópmeðferðina. Þátttakendur
    svöruðu spurningalistunum fyrir meðferð, eftir sex tíma og eftir tíu tíma. Skor listanna
    voru borin saman við skor tilrauna-og samanburðarhóps rannsóknarinnar frá árinu
    2005. Helstu niðurstöður voru þær að árangur lengri meðferðar var sá sami og styttri
    meðferðar. Eftir sex tíma meðferð var marktæk lækkun á heildarskori SDQ hjá báðum
    tilraunahópum og lækkun á MASC þó hún hafi ekki verið marktæk. Engin lækkun
    varð á Samskiptavanda og engin hækkun á Félagsfærni. Meðferðin virtist því ekki
    hafa áhrif á félagsfærni. Töluverð lækkun var á CDI í þessari rannsókn en hækkun
    varð í rannsókn ársins 2005 og því ekki hægt að draga ályktun um áhrif
    meðferðarinnar á þunglyndiseinkenni. Töluverð lækkun átti sér stað á huglægu mati
    foreldra á kvíðahegðun barnsins hjá báðum tilraunahópum og var hún marktæk eftir
    sex tíma í meðferð. Foreldrum fannst því meðferðin bera árangur og voru þeir
    jafnframt mjög ánægðir með hana samkvæmt ánægjulistanum.

Samþykkt: 
  • 11.10.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3407


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lydia_og_Unnur_fixed.pdf878.02 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna