is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3410

Titill: 
  • Rekstraráhætta í áhættustjórnun viðskiptabanka
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi fjallar um rekstraráhættu í áhættustjórnun viðskiptabanka en með
    rekstraráhættu viðskiptabanka er almennt átt við alla áhættu sem bundin er við
    hversdagslegan rekstur hans. Rekstraráhætta viðskiptabanka er einn áhættuþáttur sem
    hefur ekki hlotið mikla athygli fyrr en á síðustu árum en fjölmörg félög urðu fyrir
    talsverðu tapi á níunda áratug síðustu aldar sem í sumum tilfellum leiddi til gjaldþrots.
    Enn fremur er fjallað um hvaða áhættur koma að rekstri viðskiptabanka og hvaða
    stöðu rekstraráhætta gegnir. Þá er farið yfir laga- og eftirlitsumhverfi rekstraráhættu
    og svokölluðum Basel reglum eru gerð sérstök skil. Auk þess er fjallað um
    rekstraráhættu með almennum hætti og fjallað um tilfelli þar sem stjórnun
    rekstraráhættu hefur brugðist..
    Álykta má að tjón vegna atburða sem flokkast undir rekstraráhættu geta valdið
    bönkum verulegum skaða enda sýna tilvikin sem rakin eru í ritgerðinni að slíkir
    atburðir geta leitt til gjaldþrots banka.. Því er mikilvægt að stjórnendur banka
    skilgreini rekstraráhættu og áhættustefnu gagnvart þessari tegund áhættu ásamt því að
    reyna að stjórna rekstraráhættu eftir fremsta megni. Stjórnun rekstraráhættu felst
    meðal annars í sérskráningu tapsatburða sífelldra endurskoðana á verkferlum og innra
    eftirliti. Þá er mikilvægt vegna stöðu banka í fjármálakerfi að eftirlitsstofnanir sinni
    hlutverki sínu.

Samþykkt: 
  • 11.10.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3410


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Pall_Arnason_fixed.pdf309.63 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna