is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3426

Titill: 
  • Heiðin minni í frásögnum af landnámi Íslands
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í ritgerðinni er fjallað um þætti í aðdraganda og atburðarás landnáms á Íslandi á 9. og 10. öld samkvæmt frásögn Landnámu. Undirbúningur landnámsins, ferðalagið yfir hafið og landnámið sjálft eru skoðuð með tilliti til hefða sem mögulega eiga rætur í mýþum eða uppruna landnámsmanna.
    Ástæður landnámsins og forsendur flutninganna verða látnar liggja á milli hluta en lögð áhersla á að kanna aðrar forsendur landnemanna.
    Í ritgerðinni eru heiðin minni lögð að jöfnu við goðsagnir og athafnir sem þeim tengjast í textunum. Hugtakið mýþa er notað í samræmi við handbók um bókmenntafræði. Það er erfitt að gera greinarmun á trúarlegum uppruna mýþa í Landnámu vegna þess að í sögnunum birtast þessar mýþur ýmist í tengslum við kristna eða heiðna landnámsmenn. Við landnámið eru fulltrúar guða og vætta beggja trúarbragða virkir þátttakendur í að skapa fólki örlög í nýju landi.
    Í ritgerðinni verður fjallað um undirbúning landnámsmannanna heima í gamla landinu, hvað þeir gera sér til heilla áður en lagt er á hafið og skoðaðar þær mýþur sem koma fram í frásögnum af ferðalaginu, á hvað fólk setur traust sitt. Aðferðir við landnám og landhelgun verða skoðaðar út frá sömu forsendum og í ljósi þeirra mýþa sem koma við sögu.

Samþykkt: 
  • 12.10.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3426


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kristofer_Mar_Kristinsson_fixed.pdf365.56 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna