Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3454
HCl sameindin er vinsæl í rannsóknum með litrófsgreiningu. Sameindin hefur verið rannsökuð í nokkurn tíma við Raunvísindastofnun Háskólans með REMPI aðferðinni (Resonance Enhanced Multiphoton Ionization). Þessi aðferð gerir kleift að rannsaka áður óþekkt örvuð ástönd sameindarinnar. Samhliða þessum rannsóknum eru ab-initio útreikningar, þar sem hægt er að reikna mættisferla örvuðu ástandanna. Út frá þessum mættisferlum er hægt að reikna litrófsfasta hvers ástands fyrir sig. Nokkur örvuð ástönd HCl sameindarinnar hafa verið reiknuð. Einhverjir útreikningar voru einnig keyrðir fyrir HF sameindina. Getan til að beita útreikningum einfaldlega á örvuð ástönd sameinda er fremur nýleg. Aðferðinni sem hér er beitt er equations of motion (EOM), sem er stækkun á coupled cluster (CC) aðferðinni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Erlendur_Jonsson_fixed.pdf | 1.15 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |