is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3486

Titill: 
  • Undirbúningur stöðlunar á WASI fyrir fullorðna á aldrinum 17-29 ára
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessarar rannsóknar var að undirbúa stöðlun á greindarprófinu Wechsler
    Abbreviated Scale of Intelligence (WASI) fyrir fullorðna á aldrinum 17-29 ára.
    Prófið var lagt fyrir 147 þátttakendur á höfuðborgarsvæðinu sem valdir voru með
    hentugleika í lagskiptu kvótaúrtaki. Flestir þátttakendur voru starfsmenn fyrirtækja
    og stofnanna og nemendur í framhaldsskóla. Meðalaldur var 23,45 ár og
    staðalfrávik 3,96 ár. Kynjaskipting var 45% karlar og 55% konur. Helstu
    niðurstöður voru þær að þáttabygging bandarískrar útgáfu greindarprófsins hélt sér
    hérlendis. Undirprófin Orðskilningur og Líkingar hlóðu á munnlegan þátt og
    undirprófin Rökþrautir og Líkingar hlóðu á verklegan þátt. Helmingunaráreiðanleiki
    allra undirprófa WASI var viðunandi hérlendis en lægri í samanburði við
    bandaríska útgáfu prófsins. Samanburður á þyngdarröð íslenskrar útgáfu
    undirprófsins Rökþrauta við þyngdarröð bandarískrar útgáfu leiddi í ljós að 74%
    atriða breyttust milli útgáfna. Þegar bandarísk norm voru notuð við túlkun á
    niðurstöðu verklegra undirprófa og verklegrar greindartölu þá ofmat íslensk útgáfa WASI greind fullorðinna hérlendis.

Samþykkt: 
  • 31.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3486


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Atli_Vidar_Bragason_fixed.pdf402.43 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna