Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3510
Í þessari ritgerð verður einblínt á sjónvarpsvöktun sem skilgreind er í b-lið 6. tl. 2. gr. laga nr. 77/2000, og leitast við að gera grein fyrir þeim lagareglum sem gilda um framkvæmd hennar. Ætlunin er að setja fram nokkuð heildstæða umfjöllun um þau atriði, sem hafa ber í huga áður en hafist er handa við sjónvarpsvöktun. Í fyrsta kafla ritgerðarinnar verða lykilhugtök sem þýðingu hafa við umfjöllunina skýrð. Í öðrum hluta verður síðan fjallað stuttlega um þau lög og þær reglur sem gilda um rafræna vöktun. Þriðji og síðasti hluti ritgerðarinnar verður svo helgaður nánari útlistun á þeim ákvæðum sem gilda um sjónvarpsvöktun, og ætti sá kafli að varpa nokkru ljósi á hvað þarf að hafa í huga við framkvæmd vöktunarinnar, skilyrði hennar og skyldur þess sem að henni stendur. Tekin verða dæmi úr framkvæmd Persónuverndar, sem úrskurðar í ágreiningsmálum sem koma upp vegna ákvæða laga nr. 77/2000, til þess að varpa ljósi á efni þeirra ákvæða sem gilda um sjónvarpsvöktun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Vigdis_Sig_fixed.pdf | 129.76 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |