Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3539
Í þessu verkefni verður yndislestur ungmenna skoðaður. Gögnin sem notuð eru koma úr langtímarannsókn Þorbjarnar Broddasonar, „Börn og sjónvarp á Íslandi“, en sú rannsókn hefur staðið yfir frá árinu 1968 til ársins 2009. Einkum er notast við gögn úr rannsóknunum frá 2003 og 2009. Fram til ársins 2003 er að sjá augljósa minnkun í bóklestri ungmenna á Íslandi, en helstu niðurstöður frá könnuninni 2009 benda til þess að bóklestur sé aftur að aukast hjá börnum og unglingum á Íslandi. Stelpur virðast lesa meira en strákar, og augljósa minnkun er að sjá á bóklestri þegar komið er upp í eldri bekki grunnskólans. Lestur á milli bæjarfélaga reyndist nokkuð jafn, sem er breyting frá fyrri árum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
skil_fixed.pdf | 542.57 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |