Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/355
Í þessari tæplega 12.000 orða heimildarritgerð er leitast við að svara þeirri spurningu, hvort til sé í þjóðarrétti regla sem banni eða heimili einhliða hernaðaríhlutun ríkja vegna stórfelldra mannréttindabrota innan landamæra annarra ríkja. Við rannsóknina var stuðst við rit fræðimanna, um heimildir til beitingar vopnavalds í þjóðarétti, auk rita sem fjalla um atriði sögulegs eðlis. Þá var leitast við að byggja sem mest á frumheimildum svo sem ályktunum Öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna og Allsherjarþings Sameinuðu Þjóðanna.
Rannsóknin skiptist í þrjá meginhluta. Í fyrsta lagi var farið yfir réttarheimildir þjóðarréttar á því sviði sem um ræðir. Þá var reynt að rýna í merkingu þeirra ákvæða Sáttmála Sameinuðu Þjóðanna sem fjalla um beitingu vopnavalds. Að lokum var hegðun og afstaða ríkja skoðuð með tilliti til hugsanlegrar venjuréttarreglu um hernaðaríhlutun af mannúðarástæðum.
Rannsóknin leiddi til þeirrar niðurstöðu að Sáttmáli Sameinuðu Þjóðanna bannaði hvorki né heimilaði einhliða hernaðaríhlutun af mannúðarástæðum. Sú niðurstaða er háð þeirri forsendu að ákvæð sáttmálans sú skýrð út frá breytilegum aðstæðum í þjóðarrétti fremur en með hliðsjón af markmiði leiðtoga upprunalegu stofnríkja Sameinuðu Þjóðanna.
Þá leiddi rannsóknin í ljós að kenningin um hið réttláta stríð virðist hafa verið viðurkennd í þjóðarrétti allt frá dögum Forngrikkja og fram að stofnun Sameinuðu Þjóðanna. Ekkert bendir til þess að sáttmáli Sameinuðu Þjóðanna hafi afnumið þá venjuréttarreglu.
Ennfremur hefur rannsóknin leitt í ljós að engin dómafordæmi finnast þar sem hernaðaríhlutun af mannúðarástæðum er úrskurðuð ólögmæt. Allmörg dæmi fundust um slíka íhlutun eftir stofnun Sameinuðu Þjóðanna án þess að stofnanir hennar hefðu fordæmt hana eða lýst hana ólögmæta.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
rettlstrid.pdf | 485.49 kB | Lokaður | Hið réttláta stríð - heild | ||
rettlstrid-e.pdf | 287.02 kB | Opinn | Hið réttláta stríð - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
rettlstrid-h.pdf | 115.92 kB | Opinn | Hið réttláta stríð - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
rettlstrid-u.pdf | 123.79 kB | Opinn | Hið réttláta stríð - útdráttur | Skoða/Opna |