is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3568

Titill: 
  • Áhrif Evrópusamvinnu á fullveldi Íslands
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er ætlunin að greina hvernig áhrif Evrópusamvinnan hefur haft á fullveldi Íslands fyrr og síðar. Í upphafi verður farið yfir hugtök og kenningar sem við notum við greininguna. Fullveldishugtakið verður bæði skilgreint og endurskilgreint í ljósi mikilla breytinga sem hafa átt sér stað í alþjóðasamfélaginu. Nokkrar kenningar um Evrópusamrunann verða kynntar og upphaf samrunans skoðað. Þá verður lauslega farið í samstarfssvið Evrópusambandsins og hvernig samvinnu aðildarríkjanna er háttað. Eftir þá umfjöllun verður farið í greininguna.
    Til átta sig á stöðu Íslands við upphaf Evrópusamvinnunnar þá verður lauslega farið yfir sjálfstæðisbaráttuna. Farið verður yfir þátttöku Íslands í Evrópusamrunanum og í því samhengi verður litið á afstöðu stjórnvalda til samrunans og sérstöðu Íslands í þeim efnum.
    Síðastliðið ár hefur verið átakaár á sviði efnhags- og stjórnmála á Íslandi og landið hefur stuttum tíma komist í erfiða stöðu fjárhagslega. Íslendingar leituðu á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og til nágrannaríkja eftir fjárhagsaðstoð. Lauslega verður farið í breyttar forsendur á Íslandi og hvernig þær hafa áhrif á stöðu fullveldisins.
    Greiningin sýnir okkur að þrátt fyrir að vissrar tregðu hafi gætt hjá íslenskum stjórnvöldum, gagnvart Evrópusamvinnunni, þá hafa þau sífellt verið að framselja hluta af fullveldinu til yfirþjóðlegra stofnana. Það hafa þau meðal annars gert í gegnum EFTA, EES og Schengen.

Samþykkt: 
  • 21.9.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3568


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
2_fixed.pdf304.39 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna