Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3575
Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að skoða framtíðahorfur varnarsamstarfs Bandaríkjanna, S-Kóreu og
Japans í ljósi mikilla breytinga á valdahlutföllum í NA-Asíu síðustu 20 árin. Byrjað er að skoða stöður
ríkjanna þriggja, hagsmuni þeirra og ógnir. Innbyrgðis samskipti ríkjanna, samskipti við nágrannaríki og
væntanlegar breytingar á valdahlutföllum eru skoðuð og staða og framtíð varnarbandalagsins metin út
frá því. Einnig eru tvær aðalkenningarnar í alþjóðasamskiptum teknar til skoðunar og athugað hvernig
þær passa við stöðu mála þar.
Niðurstaða ritgerðarinnar er að Bandaríkin muni áfram vera einpóla stórveldi í NA-Asíu og að áframhald
verði á bandalagi ríkjanna þriggja. Æskilegt væri að nokkrar kringumstæður í innbyrgðis samskiptum
ríkjanna myndu batna, svo sem samskipti S-Kóreu og Japans, en það er þó ekki nauðsynlegt. Sú kenning
sem nær best utanum aðstæður á svæðinu er ný-raunsæisstefnan, þó einnig megi færa rök fyrir sterkum
áhrifum frá alþjóðlegri frjálslyndisstefnu
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BAritgerd_thorsteinn_vor2009_fixed.pdf | 633.03 kB | Lokaður | Meginmál |