is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3600

Titill: 
  • Skuldatryggingar og fjármálakreppan
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Vöxtur lánaafleiðumarkaðarins hefur verið mjög hraður síðustu ár. Stærsti hluti viðskipta með lánaafleiður eru viðskipti með skuldatryggingar, aðallega skuldatryggingar á einstakar eignir. Í þessari ritgerð verður fjallað um skuldatryggingar, aðallega skuldatryggingar á einstakar eignir, farið verður yfir helstu þætti skuldatrygginga, hvernig þær virka og hvernig hægt er að meta skuldatryggingaálagið. Mismunandi uppgjörsaðferðir í skuldatryggingasamningum verða kynntar auk þess sem aðeins verður fjallað um aðrar tegundir skuldatrygginga.
    Skuldatryggingar hafa mikið verið nefndar í tengslum við fjármálakreppuna sem geisað hefur um allan heim síðustu 2 árin. Í þessari ritgerð verður fjallað um skuldatryggingar í samhengi við fjármálakreppuna og reynt verður að svara þeirri spurningu hvort viðskipti með skuldatryggingar hafi hugsanlega átt einhvern þátt í því að gera fjármálakreppuna dýpri en ella. Niðurstaðan er sú að skuldatryggingamarkaðurinn hafi átt einhvern þátt í því að auka á óstöðugleika fjármálakerfisins og þar með dýpkað fjármálakreppuna.

Samþykkt: 
  • 22.9.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3600


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS_Ritgerd_Jon_Hilmar_Purkhus_fixed.pdf253.07 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna