is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3653

Titill: 
  • Bakkabræður í Vesturbænum : nútíma útgáfa nokkurra sagna af Bakkabræðrum ásamt kennsluverkefni byggt á fjölgreindakenningunni
Titill: 
  • Sögurnar um Palla, Kalla og Halla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessu lokaverkefni sömdu höfundar sögur út frá þjóðsögunum um Bakkabræður. Sögurnar höfum við fært til nútímans og fjalla þær um þríburabræður í Vesturbænum. Þeim fylgja kennsluleiðbeiningar sem eru unnar í anda fjölgreindakenningar Howards Gardners. Verkefnin eru hugsuð fyrir nemendur í þriðja og fjórða bekk grunnskóla. Greinargerðin fjallar um fjölgreindakenninguna, hvers vegna við teljum mikilvægt að innleiða hana í skólum og hvernig hún tengist kennsluverkefni okkar. Fjallað er um af hverju þjóðsögur og sögur henti vel til kennslu og hvert uppeldis- og kennslufræðilegt gildi þeirra er. Í kennsluverkefninu eru verkefni sem fylgja hverri sögu fyrir sig. Þar er komið inn á átta mismunandi greindir nemenda samkvæmt kenningu Gardners og námsgreinar samþættar. Meðal annars er lögð áhersla á samvinnu, skapandi og sjálfstæð vinnubrögð nemenda.

Samþykkt: 
  • 23.9.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3653


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Greinargerð.pdf204.48 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna
Kennsluverkefni.pdf247.81 kBOpinnKennsluverkefni PDFSkoða/Opna
Sögurnar um Palla, Kalla og Halla.pdf5.67 MBOpinnSögurnar um Palla, Kalla og HallaPDFSkoða/Opna