is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3685

Titill: 
  • Umskurður kvenna í Afríku. Leikið til lausnar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Umskurður kvenna er stundaður í 28 ríkjum Afríku og skiptir Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) aðgerðinni upp í fjóra flokka eftir alvarleika. Erfitt hefur reynst að rekja uppruna umskurðar og finna út úr því hvort hann sé trúarleg eða félagsleg athöfn. Lögfræðingurinn og félagsfræðingurinn Elizabeth Heger Boyle vísar einfaldlega til hefðar en Ellen Gruenbaum mannfræðiprófessor segir hann eiga sér flókna samfélagslega skýringu. Margir vilja bendla hann við íslamstrú en hann tíðkast þó einnig meðal annarra trúarbragða. Einnig er því oft haldið fram að það séu einungis karlmenn samfélaganna sem sjá til þess að umskurði sé viðhaldið en þekkt er að konur hafi sínar ástæður. Þær sem hinsvegar eru á móti áframhaldandi iðkun hafa barist fyrir réttindum sínum og kynsystra sinna með ýmsum hætti en aukin menntun virðist vera lykillinn að bættri stöðu kvenna. Leikhús hinna kúguðu var stofnað af Augusto Boal 1979 en hún gæti hentað vel sem kennsluaðferð í baráttunni við umskurð kvenna.

Samþykkt: 
  • 25.9.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3685


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
pd_fixed.pdf204.04 kBLokaðurHeildartextiPDF