Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3698
Í ritgerðinni er fjallað um heildstæðu agastjórnunarnálganirnar Positive Behavior Support (PBS) sem á íslensku hefur verið þýtt sem Stuðningur við jákvæða hegðun og Uppeldi til ábyrgðar (Restiturion – Self discaplin) einnig nefnd uppbyggingarstefna. Nálganirnar hafa rutt sér til rúms í grunnskólum hér á landi síðustu 6-8 ár en byggja á mjög ólíkum hugmyndafræðilegum grunni.
Í mars 2009 höfðum við samband við skóla sem hafa innleitt sitt hvora nálgunina og tókum viðtöl við forsvarsmenn þeirra og þrjá starfandi kennara, einn á hverju aldursstigi. Markmiðið var að skoða hvernig nálganirnar reynast kennurum í starfi. Niðurstöður gefa til kynna að í báðum skólum skynja forsvarsmenn og kennarar breytingu til hins betra á skólabragnum í heild. Almenn ánægja ríkir meðal kennara þar sem uppbyggingarstefnan er við lýði, þeir telja að hún geri þá sjálfa öruggari í starfi og virki vel á alla nemendur. Í PBS skólanum kom fram greinilegur munur eftir aldursstigum. Kennarar á yngsta- og miðstigi telja nálgunina jákvæða, hún styrki þá í starfi og virki vel á flesta nemendur. Kennari á unglingastigi telur hana alls ekki henta fyrir nemendur á því aldursstigi, þeir sjái í gegnum kerfið og líti jafnvel á umbun sem mútur.
Lykilorð: Stuðningur við jákvæða hegðun, uppbyggingarstefnan, heildstæð aðferð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni-skil.pdf | 793.66 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |