is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3718

Titill: 
  • Boðskapur málshátta : hleypidómar eða heilagur sannleikur
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið ritgerðarinnar er að ræða boðskap málshátta og íhuga hvort hann eigi við í nútímasamfélagi. Í ritgerðinni er fjallað um bændasamfélagið nánar tiltekið á 19. öld og þangað til veldi þess hrundi. Sérstaklega er fjallað um bernskuna, uppeldi barna og mun á því milli samfélaga. Einn kafli fjallar svo sérstaklega um málshætti, sögu þeirra, tilgang og viðhorf almennings gagnvart þeim.
    Margt hefur verið skrifað af erlendum fræðimönnum um málshætti en í fimmta kafla er vitnað í umfjöllun nokkurra slíkra um margræðni og mótsagnir málshátta. Fjölmargir málshættir tengjast börnum og barnauppeldi en í sjötta kafla er varpað ljósi á nokkra slíka, merkingu þeirra og notkun. Þar er einnig fjallað aðeins um breytingu á samskiptum fólks vegna tilkomu tækninýjunga á borð við tölvur og farsíma.
    Boðskapur margra málshátta á við enn í dag en sumir eru úreltir vegna þess að margt hefur breyst í samfélaginu. Uppeldishættir eru aðrir, atvinnan er ólík og gildismatið er annað en áður var. Undir vissum kringumstæðum hættir fólki samt sem áður til að líta á staðhæfingar málshátta sem heilagan sannleika.

Samþykkt: 
  • 28.9.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3718


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Boðskapur málshátta.pdf1.29 MBLokaðurHeildartextiPDF